HD ehf. og HS Orka hafa undirritað samninga um uppsetningu vélbúnaðar vegna stækkunar virkjunar HS Orku í Svartsengi ásamt rammasamningi um verktakaþjónustu.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Samningarnir sem undirritaðir voru á föstudaginn fela í sér efnisútvegun, smíði og uppsetningu á hverfilsamstæðu vegna stækkunar virkjunar HS Orku í Svartsengi ásamt rammasamningi um verktakaþjónustu.
Mun verkið fela í sér efnisútvegun og smíði palla, stiga, pípuundirstöðu og pípukerfa í stöðvarhúsi ásamt dælustöð við kæliturn, smíði og uppsetningu á dropaskilju, uppsetningu og samsetningu eimsvala, gassogskerfa, kæliturns og hverfilsamstæðu í Orkuveri 7.
„Samningurinn um uppsetningu vélbúnaðar er stærsti einstaka samningur sem gerður hefur verið í sögu félagsins og erum við í HD ehf. gríðarlega stolt af því að HS Orka hafi leitað til okkar og óskað eftir okkar aðkomu að þessu verkefni. Gert er ráð fyrir að vinna hefjist sem allra fyrst og áætluð afhending verksins er 30. október 2025,“ segir í tilkynningunni.