KEA hefur selt 12% eignarhlut sinn í Slippnum á Akureyri en KEA hefur verið hluthafi í félaginu allt frá þeim tíma þegar það var endurreist á árinu 2005.
Kaupandi eignarhlutarins er dótturfélag Kaldbaks sem hefur átt ráðandi hlut í Slippnum um nokkurra ára skeið.
Salan er hluti af áherslum KEA um að fækka verkefnum en um leið að stækka þau verkefni sem félagið heldur á hverju sinni, að því er segir í tilkynningu.