Jóhann Gunnar Jóhannsson hefur verið ráðinn forstjóri Securitas. Hann hefur verið í hlutverki forstjóra frá því að Ómar Svavarsson lét af störfum síðastliðinn febrúar en Jóhann var áður fjármálastjóri félagsins. Greint er frá þessu í tilkynningu.
Jóhann hefur áður starfað sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Isavia, framkvæmdastjóri fjármála- og mannauðssviðs Ölgerðarinnar og sem aðstoðarforstjóri Icelandic Group.
Jóhann er löggiltur endurskoðandi og viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.
Í tilkynningunni er haft eftir Jóhann að hann telji framundan spennandi verkefni og mikil tækifæri.