Stefán E. Stefánsson
Jóhann Ágúst Hansen mætti á uppboð Bruun Rasmussen í febrúar árið 2007. Með heimild frá Landsbankanum bauð hann ítrekað í verkið gegn öðrum áhugasömum og hreppti hnossið, Hvítasunnudag Kjarvals.
Verkið reyndist eitt hið dýrasta sem selt hefur verið eftir íslenskan listamann. Það var málað árið 1917 og gaf það danska kaupsýslumanninum Nienstedt og konu hans í silfurbrúðkaupsgjöf en Kjarval hafði búið hjá þeim meðan hann var við nám í Kaupmannahöfn.
Verkið var á uppboðinu metið á 100-150 þúsund danskar krónur en þegar uppi var staðið var það selt á 1,3 milljónir danskra króna. Heimkomið kostaði verkið um 25 milljónir króna.
Í nýjasta viðskiptaþætti Dagmála fer Jóhann Ágúst yfir atburðarásina þegar hann keypti verkið fyrir hönd bankans. Það hangir nú uppi í nýjum höfuðstöðvum bankans. Hann segir verkið eitt af perlum íslenskrar myndlistar og eigi að eiga þar heiðurssess þar sem almenningur geti notið þess.
Viðtalið við Jóhann Ágúst má sjá og heyra í heild sinni hér: