Fjárfestu fyrir 3,5 milljarða í samgönguinnviðum

Ragnhildur Hjaltadóttir nýr stjórnarformaður.
Ragnhildur Hjaltadóttir nýr stjórnarformaður. Ljósmynd/Betri samgöngur

Ragnhildur Hjaltadóttir, fyrrum ráðuneytisstjóri í innviðaráðuneytinu, er nýr stjórnarformaður Betri samgangna. Fyrirtækið fjárfesti í samgönguinnviðum fyrir 3,5 milljarða og var rekstrarniðurstaða fyrirtækisins jákvæð um 103 milljónir. 

Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu frá Betri samgöngum.

Ragnhildur tekur við af Árna M. Mathiesen, fyrrum fjármálaráðherra, sem verið hefur stjórnarformaður frá stofnun fyrirtækisins 2020. Að öðru leyti er stjórnin óbreytt.

1,3 milljarðar í undirbúning Borgarlínunnar

Á aðalfundinum fjallaði Davíð Þorláksson framkvæmdastjóri um að fjárfestingar í samgönguinnviðum í fyrra hefðu verið 1,1 milljarður í stofnvegum, 1,3 milljarðar í undirbúningi Borgarlínunnar, 600 milljónir í hjóla-, og göngustígum og undirgöngum og 500 milljónir og öryggis- og flæðisbætandi aðgerðum og umferðarljósastýringu, alls 3,5 milljarðar.

Stjórn Betri samgangna ásamt framkvæmdastjóra. Frá vinstri Davíð Þorláksson framkvæmdastjóra, …
Stjórn Betri samgangna ásamt framkvæmdastjóra. Frá vinstri Davíð Þorláksson framkvæmdastjóra, Pál Björgvin Guðmundsson, Guðrúnu Ögmundsdóttur, Ragnhildi Hjaltadóttur formann stjórnar, Ólöfu Örvarsdóttur, Eyjólf Árna Rafnsson og Ásthildi Helgadóttur. Ljósmynd/Betri samgöngur

„Frá gildistöku Samgöngusáttmálans hefur verið fjárfest í samgönguinnviðum fyrir alls 14,5 milljarða. Þar af eru 6,5 milljarðar í stofnvegum, 3,8 milljarðar í undirbúningi Borgarlínunnar, 2,7 milljarðar í hjóla-, og göngustígum og undirgöngum og 1,6 milljarðar og öryggis- og flæðisbætandi aðgerðum.“

Jákvæð rekstrarniðurstaða

Rekstrargjöld fyrirtækisins voru 226 milljónir árið 2023 og voru fjármunatekjur 329 milljónir. Rekstrarniðurstaðan var því jákvæð um 103 milljónir. Það er breyting frá því árið áður þegar rekstrarniðurstaðan var neikvæð um 37 milljónir. 

„Eignir voru 25,2 milljarðar í árslok, samanborið við 21,6 milljarða í lok árs 2022. Hlutafé var óbreytt, 15 milljarðar, þannig að skuldir voru 10,2 milljarðar, samanborið við 6,6 milljarða árið áður. Handbært fé um áramótin var 3,1 milljarður, samanborið við 2,5 milljarða á sama tíma árið áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK