Sólveig Hrönn til liðs við Carbfix

Sólveig Hrönn Sigurðardóttir.
Sólveig Hrönn Sigurðardóttir. Ljósmynd/Carbix

Sólveig Hrönn Sigurðardóttir hefur bæst við ört stækkandi hóp starfsfólks Carbfix og stýrir tæknisviði Carbfix (CTO).

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Carbix en þar segir að Sólveig hafi áður verið forstöðumaður upplýsingatæknireksturs hjá Alvotech og þar á undan forstöðumaður þjónustustýringar hjá Reiknistofu bankanna. Hún er með B.Sc.-gráðu í tölvunarfræði, B.Ed.-gráðu í kennslufræði og MIM í upplýsingastjórnun.

Umkringd hæfileikaríku fólki

„Það eru forréttindi að vera hluti af Carbfix-teyminu, þar sem unnið er af krafti og eldmóð að raunverulegum loftslagsaðgerðum. Ég er umkringd hæfileikaríku fólki sem hefur ekki einungis sýnt fram á getu sína til að ná árangri, heldur einnig þann drifkraft sem þarf til að takast á við loftslagsvána. Ég er er full tilhlökkunar til að slást í för með Carbfix í þessari mikilvægu baráttu,“ er haft eftir Sólveigu í tilkynningunni.

Carbfix er brautryðjandi á heimsvísu í bindingu CO2 í bergi neðanjarðar. Fyrirtækið hefur síðan 2012 bundið yfir 90 þúsund tonn af CO2 á Íslandi með eigin tækni sem er örugg, sannreynd, varanleg og hagkvæm. Stefnt er að frekari innleiðingu hennar bæði á Íslandi og erlendis.

Á síðasta ári var tilkynnt að Coda Terminal, verkefni Carbfix, sem er eitt umfangsmesta loftslagsverkefni á Íslandi. Þetta verkefni markar tímamót í baráttunni við hlýnun jarðar og er grundvöllur fyrir nýja, loftslagsvæna atvinnugrein, þar sem Carbfix-tæknin mun binda CO2 í mun stærri mæli en áður. Verkefnið hlaut 16 milljarða íslenskra króna styrk frá Nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK