Guðmundur Fertram tilnefndur

Guðmundur Fertram Sigurjónsson.
Guðmundur Fertram Sigurjónsson. mbl.is

Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, hefur verið tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 (European Inventor Award). Tilnefninguna hlýtur hann fyrir þá uppfinningu sína að nota fiskroð til sáragræðslu. Guðmundur Fertram og þróunarteymi hans voru valin úr hópi rúmlega 550 tilnefndra, en verðlaunin eru viðurkenning á uppfinningum sem veitt hafa verið einkaleyfi fyrir í Evrópu.

Þetta er í annað sinn sem íslenskt þróunarteymi er tilnefnt til verðlaunanna en í fyrra voru Þorsteinn Loftsson og Einar Stefánsson, prófessorar emeritis og stofnendur Oculis, tilnefndir til verðlaunanna.

Guðmundur Fertram hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga á liðnum árum, ýmist sjálfur eða fyrir hönd Kerecis. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK