Seljendur hlutabréfa í almennu hlutafjárútboði Íslandshótela hafa ákveðið að falla frá útboði og þar með skráningu félagsins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Almennu hlutafjárútboði Íslandshótela lauk klukkan 16 í dag. Vel á þriðja þúsund aðilar tóku þátt í útboðinu og skráðu sig fyrir hlutum að verðmæti ríflega 8 milljarðar króna. Það fékkst þó ekki áskrift í útboðinu fyrir öllum boðnum hlutum og því hafa seljendur ákveðið að falla frá útboðinu. Í tilkynningu Íslandshótela segir að Í ljósi þessarar ákvörðunar munu allar áskriftir falla sjálfkrafa niður.
„Markaðsaðstæður hafa verið erfiðar síðustu misseri og það er ljóst að aðstæður hafa ekki orðið auðveldari. Efnahagsumhverfið er erfitt, markaðir þungir og vaxtastig hátt, en okkur þótti samt rétt í ljósi mikils áhuga á félaginu að athuga með skráningu á þessum tímapunkti. Niðurstaðan er hins vegar sú að hluthafar og stjórn hafa tekið þá ákvörðun að falla frá útboði og skráningu,“ er haft eftir Davíð Torfa Ólafssyni, forstjóra Íslandshótela í tilkynningu.