135 milljarða samningur um endurfjármögnun skulda

Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.
Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alcotech hefur gert samning um endurfjármögnun skulda upp á allt að 965 milljónir Bandaríkjadala, eða um 135 milljarða íslenskra króna, við GoldenTree Asset Management, bandarískt eignastýringarfyrirtæki, sem fer fyrir hópi alþjóðlegra stofnanafjárfesta.

Lánafyrirgreiðslan gerir Alvotech kleift að draga úr fjármagnskostnaði, endurfjármagna lán sem eru með lokagjalddaga á næsta ári og styrkja lausafjárstöðu sína, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Lánveitendur eru alþjóðlegir stofnanafjárfestar með mikla reynslu af fjármögnun og þekkingu á fyrirtækjum í heilbrigðisgeiranum. Lánafyrirgreiðslan staðfestir traust þeirra á rekstri og framtíðaráætlunum Alvotech,” segir í tilkynningunni.

Gert er ráð fyrir að útgreiðsla lánafyrirgreiðslunnar verði í júlí 2024.

„Fyrri hluti, lán að fjárhæð 900 milljónir Bandaríkjadala ber 6,5% álag á SOFR (millibankavexti í dollurum), en Alvotech hefur einnig rétt til að draga á 65 milljónir til viðbótar og ber sá hluti lánsins 10,5% álag á SOFR. Lánið er á fyrsta veðrétti, til fimm ára, með lokagjalddaga í júní 2029. Alvotech ætlar að nýta lánið til þess að endurfjármagna útistandandi skuldir, þar með talið þau lán sem eru með lokagjalddaga á næsta ári. Eftirstöðvunum verður varið til að styrkja lausafjárstöðu félagsins,” segir í tilkynningunni.

Búast við umtalsverðri tekjuaukningu

„Með þessari lánafyrirgreiðslu aukum við sveigjanleika í fjármögnun og styðjum við áætlanir félagsins um vöxt á næstu árum. Við búumst við umtalsverðri tekjuaukningu samhliða markaðssetningu á fjölbreyttara úrvali lyfja, öflugri sókn á alþjóðlega markaði og áframhaldandi þróun á nýjum líftæknilyfjahliðstæðum. Endurfjármögnun lána með gjalddaga á næstu misserum auðveldar okkur að hrinda í framkvæmd áætlunum um vöxt bæði til skemmri og lengri tíma,“ sagði Joel Morales, fjármálastjóri Alvotech.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK