Kaup Landsbankans á Tryggingamiðstöðinni frá Kviku, skapar bankanum tækifæri á tryggingarmarkaði, og eykur fjölbreytni í tekjustoðum hans til langs tíma, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbankanum.
Í tilkynningunni er vísað til álits lánshæfismatsaðilans S&P global (S&P).
Kaupverðið er 28,6 milljarðar króna, en það er mat S&P að kaupin muni hafa hófleg áhrif á eiginfjárhlutfall bankans og að bankinn muni mæta þeim áhrifum að hluta með víkjandi skuldabréfaútgáfu árin 2024-2025.
Að kaupunum loknum muni framlag TM til rekstrartekna bankans þar að auki nema um 5% af heildartekjum, en í spá S&P er gert ráð fyrir að hagnaðarframlag muni smám saman raungerast á árunum 2025-2026.