Sigurður Tómasson gengur til liðs við Origo

Sigurður Tómasson er nýr framkvæmdastjóri vaxtar og viðskiptaþróunar hjá Origo.
Sigurður Tómasson er nýr framkvæmdastjóri vaxtar og viðskiptaþróunar hjá Origo. Ljósmynd/Origo

Origo hefur ráðið Sigurð Tómasson í stöðu framkvæmdastjóra vaxtar og viðskiptaþróunar félagsins. Um er að ræða nýja stöðu. 

Sigurður er með M.Sc.-gráðu í fjármálahagfræði frá Kaupmannahafnarháskóla og jafnframt með B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Sigurður tekur til starfa að loknu sumri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Origo. 

Mikill fengur í Sigurði 

Sigurður hefur undanfarin þrjú ár starfað sem verkefnastjóri hjá sjóðstýringarfélaginu VEX sem rekur framtakssjóðinn VEX I, þar sem hann hefur m.a. unnið að fjárfestingum sjóðsins á sviði upplýsingatækni. Þar áður starfaði Sigurður hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company á starfsstöð þess í Kaupmannahöfn.

„Það er mikill fengur í Sigurði fyrir Origo og tengd félög. Við erum í sóknarhug, bæði innan kjarnastarfsemi Origo á sviði hugbúnaðarlausna og rekstrarþjónustu, en ekki síður í okkar öflugu og hratt stækkandi fyrirtækjum á sviði heilbrigðistækni, netöryggislausna, ferðatækni og viðskiptagreindar; Helix, Syndis, GoDo, Unimaze, Advise og DataLab. Til þess að hámarka árangur slíkra vaxtartækifæra þarf að tryggja virkt eignarhald og stuðning við stjórnendur þeirra í gegnum stefnumótun, rekstraraðhald og fjármögnun,“ er haft eftir Ara Daníelssyni, forstjóra Origo, í tilkynningunni. 

„Ég geng til liðs við Origo fullur tilhlökkunar. Upplýsingatækni er á fleygiferð og tækifærin og verkefnin hafa sjaldan verið jafn spennandi. Hjá Origo og tengdum félögum starfar öflugur hópur fólks sem ég hlakka til að vinna með og læra af, auk þess að nýta mína fyrri reynslu og þekkingu til að styrkja starfsemina enn frekar,“ er haft eftir Sigurði í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK