Alvotech gerir samning um markaðssetningu á augnlyfi

Anil Okay, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Alvotech.
Anil Okay, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Alvotech. Drengsson

Alvotech og breska lyfjafyritækið Advanz Pharma hafa undirritað nýjan samning um framleiðslu og markaðssetningu fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við Eylea (aflibercept).

Í tilkynningu frá Alvotech kemur fram að félagið þróar nú AVT06, sem er fyrirhuguð hliðstæða við Eylea í lágum skammti (2 mg) og AVT29 sem er fyrirhuguð hliðstæða við Eylea í háum skammti (8 mg). Advanz Pharma markaðssetur lyfseðilsskyld lyf, stungu- og innrennslislyf og lyf við sjaldgæfum sjúkdómum.

Eylea (aflibercept) er líftæknilyf sem notað er til meðferðar við augnsjúkdómum sem geta leitt til sjóntaps eða blindu, svo sem votri augnbotnahrörnun, sjóndepilsbjúgi og sjónukvilla af völdum sykursýki. Í tilkynningunni kemur fram að á árinu 2023 námu tekjur af sölu Eylea í Evrópu um 2,9 milljörðum Bandaríkjadala (407 milljörðum króna) samkvæmt upplýsingum frá gagnaveitunni IQVIA.

Samkvæmt samkomulaginu mun Alvotech bera ábyrgð á þróun og framleiðslu á AVT06 og AVT29, en Advanz Pharma verður ábyrgt fyrir því að tryggja markaðsleyfi og sér um sölu og markaðssetningu. Advanz Pharma fer með einkarétt til sölu í Evrópu, að frátöldu Þýskalandi og Frakklandi þar sem félagið fer með sameiginlegan rétt. Samningurinn felur í sér fyrirframgreiðslu til Alvotech og áfangagreiðslur sem tengdar eru árangri í þróun og sölu lyfjanna.

„Við metum mikils vaxandi samstarf okkar við Advanz Pharma, sem hófst snemma á síðasta ári og hefur nú verið útvíkkað og nær alls til sjö fyrirhugaðra líftæknilyfjahliðstæða. Við eigum það sameiginlegt að hafa óbilandi trú á vexti markaðarins fyrir líftæknilyfjahliðstæður og að leggja þunga áherslu á að auka aðgengi sjúklinga að hagkvæmari líftæknilyfjum,“ segir Anil Okay, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Alvotech, í tilkynningunni.

Í janúar sl. kynnti Alvotech jákvæðar niðurstöður rannsóknar sem sýndu sambærilega klíníska virkni, öryggi og ónæmingarverkun AVT06 og samanburðarlyfsins Eylea, í sjúklingum með aldurstengda vota augnbotnahrörnun (AMD). Aðalendapunktur rannsóknarinnar var uppfylltur.

Alvotech og Advanz Pharma hafa áður starfað saman að markaðssetningu lyfja, en í febrúar 2023 gerðu félögin samning um markaðssetningu AVT23, fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæðu við Xolair (omalizumab). Samningurinn nær yfir Evrópska efnahagssvæðið, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralíu og Nýja Sjáland. Í maí 2023 tilkynntu félögin svo að samstarf þeirra hefði verið útvíkkað og næði nú einnig til fyrirhugaðra hliðstæða við Simponi (golimumab) og Entyvio (vedolizumab), auk þriggja ónefndra fyrirhugaðra hliðstæða á fyrri stigum þróunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK