Icelandair kaupir Airbus flughermi

Sylvía Kristín Ólafsdóttir og Michel Azar-Hmouda handsala samninginn.
Sylvía Kristín Ólafsdóttir og Michel Azar-Hmouda handsala samninginn. Ljósmynd/Icelandair

Icelandair hefur samið við fyrirtækið CAE um kaup á flughermi fyrir Airbus A321 flugvélar sem félagið tekur í notkun síðar á árinu. Flughermirinn verður settur upp í þjálfunarsetri Icelandair í Hafnarfirði seinni hluta árs 2025 og verður rekinn af CAE Icelandair Flight Training.

Í tilkynningu frá Icelandair segir að flughermar séu notaðir til þjálfunar nýrra flugmanna sem og reglubundinnar þjálfunar starfandi flugmanna sem þurfa að fara í endurþjálfun tvisvar á ári. CAE Icelandair Flight Training hefur rekið flugherma fyrir Boeing flugvélar Icelandair í þjálfunarsetrinu í Hafnarfirði frá árinu 2015 en fyrir þann tíma fór hermaþjálfun flugmanna Icelandair fram erlendis. Flughermar félagsins í Hafnarfirði hafa einnig verið vinsælir hjá erlendum flugfélögum og því hefur rekstur þeirra gengið vel. Nýi Airbus hermirinn verður sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi.

Í flugherminum verður nákvæm eftirlíking stjórnklefa Airbus A320 flugvélafjölskyldunnar. Hermirinn líkir eftir flugeiginleikum vélanna auk þess sem unnt er að kalla fram óvæntar aðstæður, breytileg veðurskilyrði og fleira til þess að þjálfa viðbrögð flugmanna.

Styrkir gott samstarf

„Það er mjög ánægjulegt að tilkynna samninginn við CAE og styrkja frekar það góða samstarf sem við höfum átt við fyrirtækið um árabil. Sem eyja í miðju Atlantshafinu reiðir Ísland sig á flug og mikilvægur þáttur í því að halda uppi góðum flugsamgöngum til og frá landinu er að hér sé aðstaða til þess að bjóða upp á fyrsta flokks þjálfun flugmanna,“er haft eftir Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Icelandair, í tilkynningunni.

„Airbus flughermirinn er nýjasta skrefið í áralöngu samstarfi okkar við Icelandair og við hlökkum til að starfa með félaginu við innleiðinguna á Airbus A321 flugvélum. Flughermirinn er mjög tæknilega fullkominn en hann mun styðja við öflugt þjálfunarstarf Icelandair og gera flugmenn tilbúna til þess að fljúga Airbus A321 flugvélunum á öruggan hátt með góða upplifun farþega í fyrirrúmi, “ segir Michel Azar-Hmouda, yfirmaður farþegaflugsdeildar CAE.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK