VEX hefur lokið fjármögnun á 15 milljarða framtakssjóði sem ber heitið VEX II, að því er fram kemur í tilkynningu frá VEX.
Sjóðurinn er framhald af fyrsta framtakssjóði félagsins sem stofnaður var í maí 2021. VEX hefur frá þeim tíma fjárfest fyrir um 14 ma.kr. í fimm fyrirtækjum; Opnum Kerfum, Öryggismiðstöðinni, Icelandic Provisions og hugbúnaðarfyrirtækjunum AGR og Annata, segir í tilkynningunni.
Áformað sé að VEX II fjárfesti í 5-8 fyrirtækjum á næstu fjórum árum. Fjárfest verði í félögum sem hafa rekstrarsögu og sannreynt viðskiptamódel, bæði hefðbundnum rekstrarfyrirtækjum og eins fyrirtækjum sem eru á vaxtarstigi og þurfa fjármagn til þess að sækja fram.
Í tilkynningunni segir að í öllum tilfellum hafi VEX aðkomu að stjórnun félaganna og styðji við stjórnendur og starfsfólk í því að byggja upp öflug félög með ábyrgum hætti.
Hjá VEX starfar reynslumikill hópur starfsmanna sem byggt hefur upp gott orðspor í framtaksfjárfestingum. Frá árinu 2011 hafa starfsmenn komið að fjárfestingum, fyrir hönd fjölbreytts hóp fjárfesta, í 19 fyrirtækjum fyrir yfir 65 ma.kr.