Grænlensk stjórnvöld gefa grænt ljós á gullnámu

Gullæð frá gullnámu Amaroq í Nalunaq á Grænlandi. Myndin var …
Gullæð frá gullnámu Amaroq í Nalunaq á Grænlandi. Myndin var tekin í heimsókn blaðamanna ViðskiptaMoggans á síðasta ári. mbl.is/Stefán Einar

Grænlensk stjórnvöld hafa samþykkt umhverfis- og samfélagsmat fyrir Nalunaq-gullnámuna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá námufyrirtækinu Amaroq Minerals sem birtist fyrr í dag.

Tilgangur matanna var að leggja mat á umhverfisáhrif og félagsleg áhrif sem Nalunaq-verkefnið hefði í för með sér. Fyrirtækið hefur unnið að því að undirbúa frekari gullvinnslu í Nalunaq-gullnámunni.

Mikilvægur áfangi

„Ég get ekki undirstrikað nægilega vel mikilvægi þess að ná þessum áfanga sem við höfum stefnt að síðustu fjögur ár. Ferlið hefur verið langt og strangt, þar á meðal ótal vinnustundir við gerð tæknilegra skýrslna til stuðnings verkefninu,“ er haft eftir Eldi Ólafssyni, forstjóra Amaroq, í tilkynningunni.

Blaðamenn ViðskiptaMoggans heimsóttu Nalunaq-gullnámuna á síðasta ári með Eldi Ólafssyni.

„Við erum komin á þann stað núna að við erum bæði að bora fyrir meira gulli og erum tilbúin að hefja vinnslu á næsta ári,“ sagði Eldur í viðtali við ViðskiptaMoggann á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK