Nettó mun opna við Keflavíkurflugvöll

Gunnur Líf Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri verslunar-og mannauðssviðs, Gunnar Egill Sigurðsson forstjóri …
Gunnur Líf Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri verslunar-og mannauðssviðs, Gunnar Egill Sigurðsson forstjóri Samkaupa, Heiður Björk Friðbjörnsdóttir framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs og Heiðar Róbert Birnuson rekstrarstjóri Nettó við fyrstu skóflustunguna á nýrri verslun Nettó. Ljósmynd/Aðsend

Ný verslun Nettó mun opna á Aðaltorgi í Reykjanesbæ í bráð. Verslunin verður í þriggja mínútna fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli sem mun auðvelda ferðalöngum aðgengi að verslun og þjónustu á leið til eða frá landinu.

Fyrsta skóflustungan fyrir verslunina var tekin í síðustu viku en verslunin verður 1400 fermetrar að flatarmáli og verður ein að grænum verslunum Nettó.

„Það er mikill heiður fyrir okkur að fá að taka þátt í þeirri miklu uppbyggingu sem á sér stað á svæðinu. Verslunin er ein af þeim sem við erum að byggja frá grunni í samstarfi við aðstendur Aðaltorgs og við erum gífurlega spennt fyrir því að taka þátt í ferlinu frá upphafi,“ er haft eftir Gunni Líf Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra verslunar- og mannauðssviðs hjá Samkaupum í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK