Hæfilega bjartsýnn á sigur

Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri og stofnandi Kerecis er tilnefndur til …
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri og stofnandi Kerecis er tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna. Anton Brink

Netkosning um Evrópsku nýsköpunarverðlaunin, sem veitt eru af Einkaleyfastofu Evrópu (European Patent Office), stendur nú yfir en eins og greint var frá í Morgunblaðinu um miðjan maí hlaut Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, tilnefningu í ár. Tilnefninguna hlaut hann fyrir þá uppfinningu sína að nota fiskroð til sáragræðslu, en hann og þróunarteymi Kerecis var valið úr hópi rúmlega 550 aðila.

Almenna netkosningin hefur staðið í nokkrar vikur en almenningur getur kosið í kosningunni. Það er ljóst að keppinautar Guðmundar Fertrams koma úr talsvert stærri samfélögum, en hann keppir þar á móti teymum frá Svíþjóð annars vegar og Þýskalandi og Ítalíu hins vegar.

Guðmundur Fertram segist í samtali við Morgunblaðið vera hæfilega bjartsýnn á sigur í netkosningunni.

„Við höfum nú ekki staðið í sérstakri kosningabaráttu, enda erum við upptekin við að koma vörunni okkar í hendur lækna og hjálpa fólki. Við gleðjumst yfir hverju atkvæði sem við fáum og vonum það besta, en hugur minn er frekar hjá sjúklingum um allan heim sem þurfa hjálp,” segir Guðmundur Fertram.

Tilnefningin er í flokki framleiðslu og eru þrír uppfinningamenn tilnefndir. Úrslitin verða kunngjörð við hátíðlega athöfn á Möltu í næstu viku, 9. júlí.

Guðmundur Fertram segir þessa tilnefningu afar mikilsverða, enda sjái Einkaleyfastofa Evrópu um öll einkaleyfi í Evrópu. Tilnefningin sé auðvitað mikill heiður, en hitt skipti meira máli að vekja athygli á sáraroðinu frá Kerecis og stuðla þannig að aukinni notkun.

„Árangurinn af notkuninni er oft á tíðum ótrúlegur og við erum stolt af því að stuðla að bættri heilsu fólks um allan heim. Þrátt fyrir árangurinn eru enn margir sem þekkja ekki til Kerecis. Verðlaun af þessu tagi geta svo sannarlega hjálpað til við að breiða út þekkingu á íslenska sáraroðinu og þannig orðið til þess að fleiri sjúklingar í neyð fái notið hennar,” segir hann að lokum.

Hægt er að greiða Guðmundi Fertram og sáraroði Kerecis atkvæði með því að smella hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK