Bjarni Guðjónsson hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá tryggingafélaginu VÍS og mun taka til starfa í haust, er segir í tilkynningu frá félaginu.
Hann starfaði sem framkvæmdastjóri KR síðastliðin þrjú ár en sagði nýlega þar upp störfum. Þá hefur hann áður starfað hjá VÍS, þá sem viðskipta- og sölustjóri í sjávarútvegi.
Bjarni er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og ECA-gráðu í stjórnun íþróttafélaga ásamt þjálfaraleyfi.
„Ég hlakka virkilega til að snúa aftur til VÍS enda eru mörg spennandi verkefni framundan. Ég hef fylgst með félaginu undanfarin ár og er stoltu af metnaðarfullum markmiðum þess á markaði. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til þess að þau verði að veruleika,“ er haft eftir Bjarna.