Ellert Arnarson hefur verið ráðinn nýr fjármálastjóri Amaroq Minerals Ltd. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til kauphallarinnar í morgun.
Ellert kemur til Amaroq frá Landsbankanum þar sem hann hefur gegnt stöðu forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar bankans. Þar áður starfaði Ellert í eignastýringu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og sem sjóðstjóri hjá GAMMA Capital Management.
Ellert er með M.Sc. gráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands og B.Sc. í stærðfræði frá sama skóla.