Staðgreiðsluskyld launasumma hækkaði um 5,2% í maí 2024 frá fyrri mánuði en hækkunin á milli ára var 6,5%.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Hagstofunnar.
Launasumma var um 173,9 milljarðar króna, fjöldi einstaklinga var um 217.800 og fjöldi launagreiðanda um 21.800. Hagstofan vekur athygli á því að greiðslur eru ekki verðlagsleiðréttar.