Samkeppniseftirlitið tók ákvörðun til bráðabirgða í gær vegna sennilegs brots Símans hf., Noona Labs ehf. og Noona Iceland ehf. á banni við því að framkvæma samruna áður en Samkeppniseftirlitið hefur tekið afstöðu til hans.
Í júní var greint frá því að Síminn hafi undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Noona Iceland ehf. sem heldur utan um innlendan rekstur Noona Labs ehf.
Í tilkynningu segir að kaupin hafi verið tilkynnt Samkeppniseftirlitinu. Fullbúin tilkynning barst eftirlitinu 4. júlí og er athugun Samkeppniseftirlitsins á samrunanum því nýhafin.
„Að mati Samkeppniseftirlitsins gefa gögn og upplýsingar sem eftirlitið hefur undir höndum til kynna að samrunaaðilar hafi þegar hafið markaðssetningu gagnvart nýjum viðskiptavinum á grundvelli samrunans ... Gefa gögn jafnframt til kynna að Noona hafi náð til sín nýjum viðskiptavinum á grundvelli þessarar markaðssetningar,“ segir í tilkynningunni.
Þá er bent á að í samkeppnisrétti ESB/EES og íslenskum rétti er lögð áhersla á að samrunafyrirtæki framkvæmi ekki samruna fyrr en samkeppnisyfirvöld hafa haft tækifæri til að rannsaka samkeppnisleg áhrif hans lögum samkvæmt.
Þetta sé mikilvægt því eðli máls samkvæmt getur hlotist af því tjón fyrir viðskiptavini eða keppinauta ef samruni er framkvæmdur áður en samkeppnisyfirvöld hafa haft tækifæri til að grípa til mögulegrar íhlutunar.
Í bráðabirgðaákvörðuninni er því mælt fyrir um skyldu Símans og Noona að láta af af allri markaðssetningu á grundvelli samrunans.
Með bráðabirgðaákvörðuninni er leitast við að tryggja að framkvæmd samrunans sé stöðvuð á meðan eftirlitið fjallar um hann. Í framhaldinu mun Samkeppniseftirlitið taka hin sennilegu brot til nánari rannsóknar.
Þá er tekið skýrt fram að í bráðabirgðaákvörðun felst engin afstaða til kaupa Símans á Noona, þ.e. áhrifa kaupanna á samkeppni, en rannsókn á því er á fyrstu stigum.
Bráðabirgðaákvörðunin gildir til 9. ágúst.