Víkingur nýr markaðsstjóri Öskju

Víkingur Grímsson, markaðsstjóri Öskju.
Víkingur Grímsson, markaðsstjóri Öskju. Ljósmynd/Aðsend

Víkingur Grímsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Bílaumboðsins Öskju.

Víkingur hefur starfað hjá Öskju frá árinu 2017 og gegndi síðast starfi forstöðumanns viðskiptatengsla, en hann hefur átt sæti í framkvæmdastjórn félagsins frá árinu 2022.

Víkingur er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands sem og BA-gráðu í lögfræði frá sama skóla.

Fjögur öflug vörumerki

„Það er frábært að sjá unga starfsmenn vaxa innan félagsins, Víkingur hefur sannarlega gert það en hann byrjaði sem sölumaður Mercedes-Benz fyrir sjö árum síðan,“ er haft eftir Jóni Trausta Ólafssyni, forstjóra Öskju.

„Askja er með fjögur öflug vörumerki og alla þjónustu í kringum þau þannig að stýring markaðsmála er umfangsmikið og spennandi verkefni sem við erum heppin að fá Víking til að leysa með okkur,“ segir Jón Trausti.

Heiður að fá að leiða markaðsteymið

Víkingur segir það mikinn heiður að fá að stýra markaðsmálum Öskju, og leiða sterkt markaðsteymi sem byggt hafi verið upp á síðustu misserum.

„Sjálfur hef ég alltaf verið mikið í kringum bíla og þekki bílabransann vel. Fram undan eru virkilega spennandi verkefni og ég hlakka til að halda áfram þeirri frábæru vegferð sem félagið hefur verið á undanfarið,“ er haft eftir Víkingi.

Bílaumboðið Askja er umboðsaðili Mercedes-Benz, Kia, Honda og Smart hér á landi en starfsmenn þess og systurfélaga undir hatti Vekru voru ríflega 200 talsins í fyrra.

Vekra er móðurfélag Bílaumboðsins Öskju, Dekkjahallarinnar, Sleggjunnar, Lotus, Hentar og Bílaumboðsins Unu, sem er nýr umboðsaðili Xpeng á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK