Björn Eyþór tekur við af Rósu

Björn Eyþór tekur við stöðunni 1. september.
Björn Eyþór tekur við stöðunni 1. september. Ljósmynd/Aðsend

Björn Eyþór Benediktsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála hjá fasteignafélaginu Heimum. Hann tekur við stöðunni 1. september, en nú gegnir hann starfi forstöðumanns upplýsinga og greininga hjá Heimum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heima, sem áður hét Reginn.

Rósa Guðmundsdóttir, fjármálastjóri Heima, hefur óskað eftir því að láta af störfum. Hún hef­ur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs Eim­skips. 

Í tilkynningunni kemur fram að Eyþór hafi starfað hjá Heimum frá árinu 2014. Hann sé með meistaragráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands. Þá hafi hann lokið B.Sc.-gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði og sveinsprófi í húsasmíði.

„Ég vil þakka Rósu kærlega fyrir samstarfið og framúrskarandi framlag til uppbyggingar Heima. Það verður eftirsjá að henni og við óskum henni velfarnaðar í sínum framtíðarstörfum. Að sama skapi erum við afar ánægð með að fá Eyþór í nýtt hlutverk innan félagsins.

Hann hefur verið lykilmaður hjá stjórnendateymi félagsins þar sem hann hefur komið að öllum stærri fjárfestingarverkefnum okkar síðustu ár og hefur leitt miðlun upplýsinga um þau til helstu haghafa. Hann er afar sterkur fjármálamaður en nýtur þess einnig að hafa breiðan bakgrunn með menntun í byggingaverkfræði og sveinspróf í húsasmíði. Það eru fáir sem búa yfir jafn mikilli innsýn og reynslu á þessum markaði og ég hlakka til að vinna með honum í nýju hlutverki,“ er haft eftir Halldóri Benjamín Þorbergssyni forstjóra Heima í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK