Rósa ráðin fjármálastjóri Eimskips

Rósa hefur störf í byrjun september.
Rósa hefur störf í byrjun september. mbl.is/mbl.is

Rósa Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eimskips. Hún hefur störf í byrjun september. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip.

Í tilkynningunni segir að Rósa hafi víðtæka reynslu af innlendri og erlendri fjármálastarfsemi. Hún hafi starfað sem framkvæmdastjóri fjármála hjá Heimum hf. frá árinu 2021. Áður hafi hún starfað hjá Íslandsbanka, meðal annars á alþjóðasviði, sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði, í fyrirtækjaráðgjöf bankans og á einstaklingssviði.

Þá kemur fram að Rósa sé með MS-gráðu í iðnaðarverkfræði og aðgerðargreiningu frá Ríkisháskólanum í Pennsylvaníu og BS-gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Þá hefur hún einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

„Rósa hefur nýtt mikla reynslu sína á fjármálamörkuðum í umbreytingu á fjármálasviði Heima hvað varðar áætlanagerð, stefnu, lykilmælikvarða og ferla sem er í takti við þá vegferð sem við höfum verið á hjá Eimskip. Ég hlakka til að fá Rósu til liðs við okkur og er viss um að áherslur hennar, þekking og reynsla, ekki síst í stafrænum og sjálfvirkni verkefnum, nýtist félaginu vel á komandi misserum,“ er haft eftir Vilhelm Má Þorsteinssyni forstjóra Eimskips í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK