Friðbjörn tekur við Unimaze

Friðbjörn Hólm er nú framkvæmdastjóri Unimaze.
Friðbjörn Hólm er nú framkvæmdastjóri Unimaze. Ljósmynd/Aðsend

Friðbjörn Hólm Ólafsson hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Unimaze, sem sérhæfir sig í sjálfvirkni viðskiptaferla og stöðlum sem tengjast rafrænni skeytamiðlun.

Í tilkynningu frá Unimaze segir að Friðbjörn sé með yfir 20 ára stjórnunarreynslu og hafi áður starfað hjá Deloitte, Staka og Símanum. Hann sé með MBA frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc. í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Syddansk Universitet.

„Það er mér mikill heiður og ánægja að taka við þessu starfi. Ég hef bæði fylgst með og átt í afar góðu samstarfi við Unimaze allt frá árinu 2005 og þekki því vel til starfseminnar og þess sem fyrirtækið hefur upp á bjóða. Unimaze er leiðandi á sínu sviði á evrópskum markaði og ég hlakka mikið til að halda áfram uppbyggingu fyrirtækisins með því öfluga teymi sem hér starfar,“ er haft eftir Friðbirni í tilkynningunni. 

Með góða framtíðarsýn

Þá er haft eftir Markúsi Guðmundssyni, stofnanda Unimaze, að Friðbjörn sé með framtíðarsýn sem muni stuðla að frekari velgengni fyrirtækisins.

„Það er fengur í því að fá Friðbjörn til að leiða starfsemi Unimaze enda kemur hann með viðamikla alþjóðlega þekkingu og reynslu sem mun nýtast fyrirtækinu vel. Friðbjörn þekkir vel til Unimaze, hefur framtíðarsýn sem mun stuðla að frekari velgengni fyrirtækisins á alþjóðlegum mörkuðum og reynsla hans mun tryggja áframhaldandi vöxt Unimaze.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK