Tómas skipaður varaseðlabankastjóri

Tómas Brynjólfsson verður skipaður í embættið.
Tómas Brynjólfsson verður skipaður í embættið. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Tómas Brynjólfsson verður skipaður varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika til fimm ára frá og með 1. ágúst.

Þetta kemur fram á vefsíðu Stjórnarráðsins.

mbl.is hafði áður greint frá því að fjármála- og efnahagsráðherra hefði tilnefnt Tómas til forsætisráðherra, en það er forsætisráðherra sem skipar í embættið eftir tilnefningu fjármála- og efnahagsráðherra.

Í tilkynningunni segir að Tómas hafi lokið meistaragráðu í alþjóðastjórnmálum frá London School of Economics árið 2004 og meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 2003. Þá lauk hann BA-gráðu í alþjóðastjórnmálafræði, sögu og hagfræði við University of Georgia árið 2002.

Tómas hefur gegnt embætti skrifstofustjóra á skrifstofu efnahagsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá árinu 2018 og var settur ráðuneytisstjóri frá janúar til apríl 2024. Á árunum 2015-2018 var hann framkvæmdastjóri á skrifstofu þjónustuviðskipta hjá EFTA-skrifstofunni í Brussel.

Þá var hann skrifstofustjóri á skrifstofu efnahagsmála og fjármálamarkaða í fjármála- og efnahagsráðuneytinu á árunum 2013-2015 en starfaði áður sem sérfræðingur í efnahagsmálum í forsætisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti. Á árunum 2006-2008 starfaði hann í greiningardeild Landsbankans.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK