Hagnaður Festar jókst um 78,5%

Ásta Fjeldsted forstjóri segir rekstur samkvæmt áætlun.
Ásta Fjeldsted forstjóri segir rekstur samkvæmt áætlun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Festi hf. hagnaðist um 953 milljónir á öðrum ársfjórðungi þessa árs en til samanburðar nam hagnaðurinn 738 milljónum á sama tímabili á síðasta ári.

Hagnaður fyrstu sex mánuði ársins nam tæpum 1,2 milljörðum og jókst um 78,5% milli ára en hann nam 647 milljónum á sama tímabili síðasta árs.

Þetta kemur fram í uppgjöri Festar fyrir annan ársfjórðung og fyrri árshelming sem birt var í gær.

Niðurstöður í samræmi við áætlanir félagsins

Rekstrarhagnaður félagsins á öðrum ársfjórðungi nam 2,9 milljörðum sem er 13,8% aukning milli ára.

Vörusala nam 36 milljörðum og jókst um 5,4% milli ára en hún nam 34 milljörðum árið áður. Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 8,5 milljörðum og jókst um 837 milljarða eða 10,8% milli ára.

„Rekstur félagsins gekk vel á öðrum ársfjórðungi og var niðurstaðan í samræmi við áætlanir félagsins. Framlegðarstig styrktist hjá öllum félögum samstæðunnar og hækkar um 1,1 p.p. milli ára. Þá fjölgaði heimsóknum í verslanir og var góð magnaukning í sölu flestra vöruflokka milli ára,“ er haft eftir Ástu Fjeldsted forstjóra Festar í tilkynningunni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK