Icelandair flutti metfjölda farþega í júlí

Icelandair flutti metfjölda farþega í júlí.
Icelandair flutti metfjölda farþega í júlí. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Icelandair flutti 610 þúsund farþega í júlí 2024, sem er metfjöldi fyrir einn mánuð og 8% aukning frá júlí 2023.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Af farþegunum voru 33% á leið til Íslands, 17% frá Íslandi, 45% voru tengifarþegar og 6% ferðuðust innanlands.

Betri sætanýting þrátt fyrir minni eftirspurn

Sætanýting var 87,1% og stundvísi var 80,3% sem er 5,9 prósentustigum meiri en í fyrra. Það sem af er ári hefur Icelandair flutt 2,6 milljónir farþega, 7% fleiri en í fyrra.

„Farþegar okkar í júlí voru 8% fleiri en í fyrra og um er að ræða metfjölda í einum mánuði. Þrátt fyrir minni eftirspurn eftir ferðum til Íslands á milli ára, náðum við betri sætanýtingu en í sama mánuði í fyrra. Þetta sýnir vel hvernig okkur hefur tekist að nýta sveigjanleika leiðakerfisins og lagt meiri áherslu á tengifarþega heldur en á síðasta ári þegar eftirspurn eftir ferðum til Íslands var meiri,“ er haft eftir Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK