OK semur við Humly

Kristinn Helgason, sölustjóri hjá OK.
Kristinn Helgason, sölustjóri hjá OK. Ljósmynd/Aðsend

Sænska tæknifyrirtækið Humly hefur valið tölvufyrirtækið OK sem samstarfsaðila á Íslandi fyrir Humly bókunarlausnir. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá OK.

Humly er alþjóðlegt fyrirtæki sem veitir lausnir og þjónustu um allan heim í gegnum staðbundna samstarfsaðila. Fyrirtækið er með starfsstöðvar á nokkrum stöðum víðs vegar um Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku, að því er segir í tilkynningunni.

Humly hefur þróað bókunar- og móttökulausnir fyrir vinnustaði í rúman einn og hálfan áratug. Safnið þeirra samanstendur af lausnum til að bóka fundarherbergi, borð á vinnustöðum, næðisrými, gólfplön, bókun á bifreiðum og bílastæðum á vinnustað.

„Starfsfólk hefur í dag ýmsar leiðir til þess að sinna daglegum verkefnum. Sumir vinna heima, aðrir eru í blandaðri vinnu og enn aðrir eru á skrifstofunni. Þessi blandaða vinna hefur skapað forsendur fyrir opið sætaskipulag eða verkefnamiðaða vinnuaðstöðu (e. Freeseating) í fyrirtækjum,“ er haft eftir Kristni Helgasyni, sölustjóra hjá OK, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK