Mikil uppbygging fyrirhuguð við Eyjafjörð

Haldið til hvalaskoðunar í Eyjafirði. Mynd úr safni.
Haldið til hvalaskoðunar í Eyjafirði. Mynd úr safni. mbl.is/Sigurður Bogi

Áætlaður kostnaður við uppbyggingu innviða í Dysnesi við Eyjafjörð, þar á meðal allt að 700 metra langa bryggju, verður um 10 milljarðar króna, að sögn Péturs Ólafssonar, hafnarstjóra Hafnarsamlags Norðurlands. Þar af mun höfnin kosta 4-6 milljarða.

Dysnes er í um 3,5 km fjarlægð frá Hjalteyri og 15 km norður af Akureyri.

Tölvumynd af líforkuverinu sem reisa á í Dysnesi í Eyjafirði …
Tölvumynd af líforkuverinu sem reisa á í Dysnesi í Eyjafirði á næstunni.

Að stórum hluta á vegum ríkisins

Í samtali við ViðskiptaMoggann í dag segir Pétur að kostnaðurinn muni dreifast á næstu 20-30 ár og að svæðið verði byggt upp í áföngum.

Fyrsta fyrirtækið til að koma sér fyrir í Dysnesi, og marka þannig upphaf verkefnisins, er líforkuver sem snýr að eyðingu dýraleifa. Líforkuverið er að stórum hluta á vegum ríkisins og kostnaður við fyrri áfanga þess er áætlaður 2,9 milljarðar sem falla að miklu leyti á ríkið.

Ítarlegri umfjöllun má lesa í Morgunblaðinu í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK