Júlímánuður sker sig úr

Erlendir ferðalangar.
Erlendir ferðalangar. mbl.is/Eyþór

Fleiri erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í júlí í ár, samanborið við sama mánuð á síðasta ári. Nemur fjölgunin um hálfu prósenti.

Þetta kemur fram í nýrri samantekt Landsbankans, sem unnin er úr gögnum Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands. Þar má sjá að júlímánuður sker sig úr, hvað varðar fjölda erlendra ferðamanna hér á landi, þar sem þeim fækkaði síðastliðna þrjá mánuði þar á undan. 

Í heild fóru um 277 þúsund erlendir ferðamenn um Keflavíkurflugvöll, en þar á meðal voru Bandaríkjamenn fjölmennastir, þó að þeim hafi fækkað um 12,8%. Ferðamönnum frá Asíu fjölgaði aftur á móti, og þá sérstaklega frá Kína, en á síðasta tólf mánaða tímabili hefur komum kínverskra ferðamanna fjölgað um 119,5%.

Skráðum gistinóttum fækkaði

Skráðum gistinóttum hélt þó áfram að fækka, en þær voru 9.442.575 í júní, en fækkaði um 1,4% milli mánaða.

Þar af má greina áberandi fækkun gistinótta hjá hótelum, en þær voru um 9% færri í júní en fyrir ári. Hver ferðamaður gisti því um 3,7 nætur í júní, en þær voru 4 að meðaltali á sama tíma í fyrra. Bandaríkjamenn voru sá hópur sem dvaldi lengst, en þeir gistu að meðaltali 6,9 nætur í júní.  

Kortavelta dróst einnig saman í júní, eða um 14%. Í samantekt Landsbankans, segir að kortavelta hafi þó verið meiri nú en árin 2018 og 2019, en það sé breyting frá maímánuði þegar kortaveltan var öllu lægri. 

Sérstaka athygli vekur að á meðan gistinóttum fækkar hér, hefur þeim á sama tíma fjölgað í Noregi, en þær voru nú um 18% fleiri en á sama tíma og í fyrra.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK