Norski olíusjóðurinn stækkar um 19.000 milljarða

Norski olíusjóðurinn var stofnaður til þess að halda utan um …
Norski olíusjóðurinn var stofnaður til þess að halda utan um tekjur norska ríkisins af olíuvinnslu. AFP

Verðmæti norska eft­ir­launa­sjóðs­ins, sem einnig er oft nefnd­ur norski ol­íu­sjóður­inn, hafa á fyrri hluta þessa árs aukist um tæpa 1.475 milljarða norskra króna, en það samsvarar um 19 þúsund milljörðum íslenskra króna.

Að sögn framkvæmdastjóra sjóðsins hefur verðmætavöxtur sjóðsins að mestu verið knúinn áfram af fjárfestingum í tæknihlutabréfum, en í heild hefur ávöxtun sjóðsins, það sem er af er ári numið um 8,6%.

Heildarverðmæti sjóðsins eru því nú um 17.745 milljarðar norskra króna, en það eru um það bil 229.386 milljarðar íslenskra króna.

Eignasafn sjóðsins er um 72% í hlutabréfum, en það hefur ávaxtað um 12,5%, á meðan fastafjáreign, sem er 26,1% af eignasafni, tapaði 0,6 prósentum á fyrstu sex mánuðum ársins. Sjóðurinn er almennt talinn stærsti einstaki fjárfestir í heimi, en hann í samtals hlut í 9.000 fyrirtækjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK