Áhersla á gervigreind á 20 ára afmæli RIMC

Hreggviður Magnússon og Kristján Már Hauksson.
Hreggviður Magnússon og Kristján Már Hauksson.

Markaðsráðstefnan RIMC - Reykjavik Internet Marketing Conference fagnar 20 ára afmæli á þessu ári og verður haldin þann 26. september n.k. undir yfirskriftinni „Á öldum tækninnar“.

Í tilkynningu frá aðstandendum segir að sem fyrr sé markmið ráðstefnunnar að auka þekkingu og kynna allt það nýjasta úr heimi stafrænnar markaðssetningar. Þá segir að þetta árið verði m.a. lögð áhersla á hvernig gervigreind hefur gjörbreytt því starfsumhverfi sem markaðsfólk býr við.

Á sögulegum krossgötum

„Við erum á sögulegum krossgötum í markaðssetningu þar sem gervigreind er að taka yfir sífellt stærri hluta skapandi vinnu og keyrslu auglýsingaherferða,“ segir Kristján Már Hauksson, stofnandi og stjórnandi RIMC í tilkynningunni. „Það er mikilvægt að við skiljum hvernig við getum nýtt þessa tækni á áhrifaríkan hátt til að ná betri árangri.“

Aðalfyrirlesararnir sex eru framúrskarandi að því er segir í tilkynningunni, en þeir koma frá heimsþekktum stórfyrirtækjum á borð við Google, Ikea, Getty Images og TBWA, auk stafrænna markaðsráðgjafa sem meðal annars hafa unnið fyrir tískugeirann og með risum á borð við Four Seasons, Vodafone og eBay.

Fyrirlesararnir munu samkvæmt tilkynningunni sýna raundæmi um það hvernig gervigreind hefur gjörbylt starfi þeirra og starfsumhverfi og hve mikilvæg nýsköpun eigi sér stað í tengslum við þær breytingar.

Að loknum fyrirlestrum verða pallborðsumræður þar sem fleiri sérfræðingar blandast í hópinn sem Jón Örn Guðbjartsson, forstöðumaður markaðsmála hjá HÍ kemur til með að stjórna.

Vongóðir um jákvæð áhrif

Í tilkynningunni kemur fram að könnun Gartner á meðal markaðsstjóra í Bandaríkjunum og Evrópusambandinu sýni að átta af hverjum tíu markaðsstjórum séu vongóðir um að gervigreind muni hafa jákvæð áhrif á markaðsmál og stefnu árið 2024. Enn fremur kemur fram að 25% fyrirtækja séu nú þegar að skipuleggja innleiðingu á tækni tengdri gervigreind á næstu sex mánuðum.

Könnunin sýnir einnig að 82% neytenda trúi ekki að gervigreind muni koma samfélaginu til góðs.

Allir þættir rekstrar og stjórnunar

„Það er ótrúlegt að sjá hversu hratt gervigreind er að breyta leikreglunum,“ segir Hreggviður Magnússon, framkvæmdastjóri The Engine Nordic í tilkynningunni og bætir við: „Við erum að sjá gervigreind ekki aðeins hafa áhrif á markaðssetningu, heldur einnig á alla þætti rekstrar og stjórnunar“.

Hann segir að framkvæmdastjórar allra TBWA stofanna á norðurlöndunum ásamt sérfræðingum í stefnumótun komi á ráðstefnuna til að læra: „Því það er brýnt að við sem atvinnugrein vinnum saman, deilum þekkingu og nýtum tæknina til að ná betri árangri og byggja upp sterkari framtíð,“ segir Hreggviður að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK