Atvinnuþátttaka aldrei mælst meiri

Atvinnuþátttaka fólks, á aldrinum 16 til 74 ára, hefur aldrei …
Atvinnuþátttaka fólks, á aldrinum 16 til 74 ára, hefur aldrei mælst meiri frá því samfelld mæling hófst árið 2003. mbl.is/Árni Sæberg

Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir annan ársfjórðung 2024 sýna að atvinnuþátttaka fólks, á aldrinum 16 til 74 ára, hefur aldrei mælst meiri frá því samfelld mæling hófst árið 2003.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni en þar segir að atvinnuþátttakan hafi mælst 83,6% og það þurfi að leita aftur til ársins 2016 til að finna sambærilega mælingu.

Fjöldi fólks á aldrinum 16 til 74 ára sem var á vinnumarkaði á öðrum ársfjórðungi 2024 var 241.600 manns.

Hlutfall þeirra af mannfjölda, eða atvinnuþátttaka, var eins og áður segir 83,6% sem er 1,7 prósentustigi hærra hlutfall en á sama ársfjórðungi 2023 þegar atvinnuþátttaka mældist 81,9%. Konur voru 109.600 eða 79,6% atvinnuþátttaka og karlar voru 132.000 eða 87.3% atvinnuþátttaka. 

232.900 manns starfandi

Fjöldi starfandi fólks á öðrum ársfjórðungi 2024 var 232.900 manns og var hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda 80,6%.

Frá öðrum ársfjórðungi 2023 til annars ársfjórðungs 2024 fjölgaði starfandi fólki um 10.800 manns og hlutfall þess af mannfjölda jókst um eitt og hálft prósentustig. Hlutfall starfandi kvenna var 77,3 % og starfandi karla 83,7%. Starfandi konum fjölgaði um 4.500 á meðan körlum fjölgaði um 6.400. 

Hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu var 79,8% og utan höfuðborgarsvæðisins 82,1%. Til samanburðar voru 222.100 starfandi einstaklingar á öðrum ársfjórðungi 2023 og hlutfall þeirra af mannfjölda 79,3%. Hlutfall starfandi kvenna var 75,8% og starfandi karla 82,2%. Þá var hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu 79,4% og 78,6% utan þess.

Atvinnuleysi 3,6% á öðrum ársfjórðungi

Á öðrum ársfjórðungi 2024 töldust að meðaltali 8.700 einstaklingar atvinnulausir eða 3,6% af heildarvinnuafli 16-74 ára. Á meðal kvenna var atvinnuleysi 3,0% og hjá körlum var það 3,4%.

Til samanburðar voru um 7.800 einstaklingar atvinnulausir á öðrum ársfjórðungi 2023 og var hlutfall þeirra af vinnuafli 3,4%. Atvinnuleysi á meðal kvenna var þá 2,6% og á meðal karla 4,1%. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK