Elvar Þór nýr forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar

Elvar Þór Karlsson.
Elvar Þór Karlsson. Ljósmynd/Aðsend

Elvar Þór Karlsson hefur verið ráðinn forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans og mun hefja störf í vetur.

Fram kemur í tilkynningu frá bankanum að Elvar hafi víðtæka reynslu af störfum á fjármálamarkaði.

Frá árinu 2018 starfaði hann sem verkefnastjóri í fyrirtækjaráðgjöf hjá Íslandsbanka þar sem hann kom að mörgum af helstu verkefnum fyrirtækjaráðgjafar, þar á meðal kaup- og söluferli fyrirtækja, samrunum, fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja og fjármögnun þeirra. Þar áður stundaði Elvar eigin fyrirtækjarekstur.

Elvar lauk BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2017 og lauk löggildingu í verðbréfamiðlun sama ár. Hann lauk síðan MCF-gráðu í fjármálum fyrirtækja árið 2021 frá Háskólanum í Reykjavík, segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK