Nýr meðeigandi og skrifstofustjóri hjá Maven

Anna Kristín og Helga Hrund.
Anna Kristín og Helga Hrund. Ljósmynd/Aðsend

Þjónustu- og ráðgjafafyrirtækið Maven ehf., hefur fengið nýjan meðeiganda og skrifstofustjóra til liðs við sig, sem er ætlað að styrkja stöðu fyrirtækisins sem leiðandi fyrirtæki í nýsköpun við nýtingu gagna í rekstri fyrirtækja og stofnana.

Í upphafi ársins kynnti stjórn Maven eignarhaldsferli sem gerir lykilstarfsmönnum kleift að eignast hlut í félaginu. Markmiðið er að styðja við framtíðaruppbyggingu félagsins, meðal annars með því að tvinna saman hagsmuni félagsins og starfsmanna. 

Helga Hrund Friðriksdóttir er ný í hópi eigenda hjá Maven, en hún hefur starfað hjá Maven síðan árið 2022. Hún er með B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur mikla þekkingu og reynslu á sviði gagnagreininga. Hún starfaði áður hjá Marel sem sérfræðingur í viðskiptagreind.

Anna Kristín Ólafsdóttir er nýr skrifstofustjóri Maven. Anna Kristín lauk nýverið B.Sc. gráðu í Viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Samhliða námi starfaði hún hjá Norðuráli á Grundartanga og Hörðuvallaskóla, en fyrir þann tíma gegndi hún stöðu skrifstofu- og starfsmannastjóra hjá Öldurhúsum og síðar sem skrifstofustjóri Kjarnavara. 

„Helga hefur haft  ómetanleg áhrif á þróun Maven til hins betra. Hún er mikill liðsfélagi, hefur bætt innra starf okkar og einnig styrkt tengsl við mikilvæga viðskiptavini. Ferill hennar frá gagnasérfræðingi til meðeiganda sýnir einstakan vöxt hennar og stefnumótandi sýn á sviði upplýsingatækni. Þá bjóðum við Önnu Kristínu velkomna í nýtt starf skrifstofustjóra, en fjölbreytt reynsla hennar í stjórnun og starfi að jákvæðri vinnustaðamenningu og vinnuumhverfi mun styrkja okkur í ört vaxandi fyrirtæki,“ segir Helgi Hrafn Halldórsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Maven, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK