Fer úr stjórn í starf hjá Kviku

Guðmundur Örn Þórðarson.
Guðmundur Örn Þórðarson.

Guðmundur Örn Þórðarson, sem átt hefur sæti í stjórn Kviku banka frá 2017, hefur verið ráðinn í nýja stöðu framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Kviku og mun hefja störf 20. september næstkomandi.

Í tilkynningu frá Kviku kemur fram að Guðmundur mun leiða viðskiptatengsl Kviku samstæðunnar auk þess að samræma markaðssókn tekjusviða bankans. Þá mun hann koma að þróun nýrra afurða og þjónustu í samvinnu við önnur svið bankans. Guðmundur mun samhliða hætta í stjórn bankans og taka sæti í framkvæmdastjórn.

Guðmundur útskrifaðist með Cand. Oecon próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1997. Einnig hefur hann lokið prófi í verðbréfamiðlun og eignastýringu í Bretlandi. Frá árinu 2000 til 2003 starfaði hann á þróunarsviði og í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. og gegndi síðan stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs hjá Straumi fjárfestingarbanka hf. á árunum 2003 til 2007. Guðmundur hefur undanfarin ár starfað við eigin fjárfestingar ásamt því að sinna hinum ýmsu stjórnarstörfum.

„Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Guðmund til liðs við stjórnendateymi Kviku. Hann hefur áratuga reynslu í fyrirtækjaráðgjöf og fjárfestingum, er mjög vel tengdur í íslensku viðskiptalífi og hefur mikla þekkingu á allri starfsemi Kviku eftir margra ára störf í stjórn bankans og dótturfyrirtækjum hans í Bretlandi,” segir Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku banka, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK