Félagið Grenihæð ehf. hefur keypt allt hlutafé í Promennt ehf. Fyrir á félagið allt hlutafé í NTV skólanum.
Bæði fræðslufyrirtækin sérhæfa sig í starfsmiðuðu námi, endurmenntun og í fræðslulausnum fyrir fyrirtæki.
„Með kaupunum er stefnt að því að auka við núverandi framboð á starfsmiðuðu námi og námskeiðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki ásamt því að samþætta námsleiðir sem nú þegar eru í boði. Promennt og NTV skólinn munu starfa áfram í sitt hvoru lagi og framkvæmdastjórar verða áfram þeir sömu,“ segir í tilkynningu.
Stærsta sérstaða beggja skólanna er diplómanám fyrir fullorðna sem skapar starfstækifæri á nýjum vettvangi á 6 til 18 mánuðum.
Fyrr á árinu stofnuðu Promennt og NTV skólinn saman Prófamiðstöð Íslands ehf. sem meðal annars mun annast framkvæmd prófa til viðurkennds bókara.
Promennt var stofnað árið 2000 og er til húsa í Skeifunni 11. NTV skólinn var stofnaður árið 1996 og er til húsa í Hlíðasmára 9 Kópavogi. Heildarfjöldi nemenda sem sækja nám og námsleiðir i báðum skólunum er á milli eitt til tvö þúsund á ári.