Controlant segir upp 150 manns

290 manns munu áfram starfa hjá fyrirtækinu.
290 manns munu áfram starfa hjá fyrirtækinu. Ljósmynd/Aðsend

Fyrirtækið Controlant hefur sagt upp 150 manns þvert á deildir og starfsstöðvar í fimm löndum. Í kjölfarið munu 290 manns starfa hjá félaginu á fimm starfsstöðvum, langflestir á Íslandi.

„Controlant leitast stöðugt við að aðlaga starfsemi félagsins að aðstæðum hverju sinni til þess að stuðla að sjálfbærum rekstri til framtíðar. Krefjandi aðstæður á alþjóðamörkuðum og tafir í nýfjárfestingum hafa markað rekstrarumhverfið undanfarin misseri. Controlant þjónustar eftirlitsskyldan iðnað og hefur langt sölu- og innleiðingarferli einnig haft áhrif á verkefnastöðu,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu, sem er leiðandi á sviði rauntímavöktunar fyrir aðfangakeðju lyfja.

„Í ljósi þessa hefur tekjuspá félagsins verið uppfærð og reynist nauðsynlegt að grípa til aðgerða, þar með talið fækkun starfsfólks til þess að draga úr rekstrarkostnaði og aðlaga starfsemi félagsins að þeim verkefnum sem fram undan eru.“

„Erfið ákvörðun“

Gísli Herjólfsson, forstjóri og einn stofnenda Controlant, segir í tilkynningunni:

„Það er erfið ákvörðun að grípa til þessara aðgerða en því miður nauðsynlegt til þess að aðlaga umfang félagsins að núverandi verkefnum og stuðla að sjálfbærum rekstri. Framúrskarandi fólk hefur lagt Controlant lið við uppbyggingu þess, metnaðarfulla nýsköpun, og markaðssókn. Það er því dapurt að kveðja frábæra samstarfsfélaga og ég þakka þeim kærlega fyrir sitt framlag til vegferðar félagsins,“ segir Gísli.

Gísli Herjólfsson, forstjóri og stofnandi Controlant.
Gísli Herjólfsson, forstjóri og stofnandi Controlant. Ljósmynd/Aðsend

„Við munum áfram sinna núverandi og nýjum viðskiptavinum af kostgæfni, og bjóða framúrskarandi þjónustu og vöruframboð ásamt því að auka skilvirkni og sjálfbærni í rekstri. Sýn okkar er skýr og í samstarfi við stærstu lyfjafyrirtæki heims höldum við áfram að umbylta aðfangakeðju lyfja, útrýma sóun og tryggja öryggi sjúklinga í hvívetna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK