Getum orðið Kísildalur heimsins

Ísland stendur öðrum þjóðum framar þegar kemur að nýtingu á fiski. Ísland nýtir um það bil 90% af þeim fiski sem hér er veiddur meðan önnur lönd nýta um það bil 40-50% og henda afganginum.

Þetta segir Þór Sigfússon, stofnandi Íslenska sjávarklasans og höfundur bókarinnar 100% fiskur, í Dagmálum á mbl.is í dag.

Þurfum að halda rétt á spilunum

Sjávarklasinn var stofnaður árið 2011 og hefur það markmið að tengja saman fólk og fyrirtæki í sjávarútvegi. Þór segir að ljóst sé að mikil tækifæri séu til staðar á sviði sjávarútvegs og að aðrar þjóðir geti lært mikið af Íslendingum.

„Ísland hefur alla burði til að verða Kísildalur heimsins þegar kemur að sjávarútvegsgreinum. Við hjá Sjávarklasanum stundum alþjóðlegt starf og höfum hjálpað löndum að setja upp klasa í anda okkar. Við þurfum þó að halda rétt á spilunum til að svo geti orðið og efla nýsköpun. Við stöndum framarlega en mörg tækifæri eru enn til staðar þegar kemur að tækni og sjálfvirknivæðingu í greininni,“ segir Þór.

Viðtalið í heild sinni er aðgengi­legt áskrif­end­um Morg­un­blaðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK