Íslensk erfðagreining mælist hæst

Frá viðburðinum í Opna háskólanum í morgun.
Frá viðburðinum í Opna háskólanum í morgun. Ljósmynd/Anton Brink

Íslensk erfðagreining mælist hæst fyrirtækja á Sjálfbærniásnum. Alls hlutu 16 fyrirtæki viðurkenningu í morgun á athöfn Opna háskólans í Háskólanum í Reykjavík fyrir árangur í sjálfbærni.

Sjálfbærniásinn er nýr mælikvarði sem metur viðhorf almennings til frammistöðu íslenskra fyrirtækja í sjálfbærni. Mælingin er svar við aukinni kröfu um að fyrirtæki leggi meiri áherslu á sjálfbærni.

Ljósmynd/Anton Brink

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að 63% þjóðarinnar telja að áhersla fyrirtækja á sjálfbærni hafi mjög eða frekar mikil áhrif á viðhorf þeirra gagnvart fyrirtækjum, að því er segir í tilkynningu.

Þetta viðhorf er sérstaklega sterkt meðal yngri kynslóða, þar sem 76% svarenda á aldrinum 18 til 24 ára telja sjálfbærni fyrirtækja hafa mikil eða frekar mikil áhrif á viðhorf þeirra.

Ljósmynd/Anton Brink

Verkefnið er unnið í samstarfi Prósents, Langbrókar og Stjórnvísi, með það að markmiði að hvetja fyrirtæki til aukinnar ábyrgðar og auka vitund neytenda um mikilvægi sjálfbærni.

„Við höfum lagt mikla vinnu í að þróa Sjálfbærniásinn með því að styðjast við þróun mælikvarða sem hafa verið notaðir á alþjóðlegum mörkuðum til að mæla sjálfbærni fyrirtækja. Leit okkar að besta mælikvarðanum tók um ár, og í fyrstu mælingum voru skoðaðir 14 markaðir og 47 fyrirtæki. Mælingarnar veita skýra mynd af viðhorfi fólks til þeirra fyrirtækja sem eru mæld, og við vonum að niðurstöðurnar verði hvatning til fyrirtækja að vanda enn frekar til verka í þessum málum og miðla upplýsingum um samfélagslega ábyrgð sína,“ segir Trausti Heiðar, framkvæmdastjóri Prósents, í tilkynningunni.

Ljósmynd/Anton Brink

Soffía Sigurgeirsdóttir frá Langbrók bætir við:

„Það er ekki tilviljun að Íslensk erfðagreining mælist hæst á Sjálfbærniásnum. Sjálfbærni felst ekki aðeins í umhverfisvernd, heldur einnig í því að hafa jákvæð og varanleg áhrif á fólk og samfélagið. Með frumkvöðlastarfi sínu í upphafi COVID-19 faraldursins lagði fyrirtækið sitt af mörkum til að vernda heilsu og velferð landsmanna. Íslensk erfðagreining hefur einnig stuðlað að aukinni þekkingu, nýsköpun og alþjóðlegri samvinnu, sem eru grundvallarstoðir sjálfbærs samfélags. Þessi víðtæku áhrif endurspegla þá grunnhugmynd sjálfbærni að fyrirtæki sem leggja sitt af mörkum til samfélagsins, hvort sem er í gegnum vísindarannsóknir, störf eða aðra samfélagslega ábyrgð, eru lykilþátttakendur í að skapa betri framtíð fyrir öll,” segir hún í tilkynningunni.

„Við hjá Stjórnvísi höfum mikla trú á að Sjálfbærniásinn ýti undir jákvæða þróun í íslensku atvinnulífi og skapi sér sess sem mikilvæg viðurkenning til þeirra vinnustaða sem leggja áherslu á sjálfbærni og virkt framlag í baráttunni gegn loftslagsvánni. Við göngum því til þátttöku í þessu frumkvöðlaverkefni okkar góðu samstarfsaðila með mikilli tilhlökkun,“ segir Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK