Hekla nýr framkvæmdastjóri Crowberry Capital

Hekla Arnardóttir.
Hekla Arnardóttir. Ljósmynd/Aðsend

Hekla Arnardóttir, einn af stofnendum Crowberry Capital hefur tekið við framkvæmdastjórn félagsins.

Hekla Arnardóttir tekur við stöðu framkvæmdastjóra Crowberry Capital. Crowberry Capital var stofnaður árið 2017 af Jennýju Ruth Hrafnsdóttur, Helgu Valfells og Heklu Arnardóttur sem allar eru jafnir meðeigendur og leiða þær nú tvo sjóði, Crowberry I og Crowberry II. Allir þrír meðeigendur starfa við að finna nýfjárfestingar og eftirfylgni með eignasafni sjóðsins. Helga verður stjórnarformaður og Jenný formaður fjárfestingarráðs, að því er segir í tilkynningu. 

Þá segir, að helstu bakhjarlar sjóðanna séu íslenskir lífeyrissjóðir og einkafjárfestar ásamt European Investment Fund og EIFO.

Hekla hefur 25 ára starfsreynslu í tækni og nýsköpun. Hún starfaði áður hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins og þar áður 10 ár hjá Össuri bæði í þróunardeild, við vörustjórnun og tók þátt í að setja á stofn skrifstofu Össurar í Shanghai, Kína. Hekla lauk C.Sc prófi í Véla- og Iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 1999.  

„Crowberry Capital er vísisjóður sem fjárfestir á öllum Norðurlöndum í ungum tæknifyrirtækjum sem stefna á alþjóðlegan vöxt. Crowberry Capital rekur tvo sjóði, Crowberry I sem er 4 milljarðar króna og Crowberry II sem er 14 milljarðar króna. Fjárfestar sjóðanna eru íslenskir lífeyrissjóðir og einkafjárfestar auk erlendu sjóðanna EIF og EIFO,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK