Þykir ekki rétt að hækka bankaskattinn

Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra er viðmælandi í opnuviðtali ViðskiptaMoggans.
Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra er viðmælandi í opnuviðtali ViðskiptaMoggans. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra segir í opnuviðtali í ViðskiptaMogganum að honum þyki ekki rétt að hækka bankaskattinn.

Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra hefur tjáð sig í fjölmiðlum um skoðun sína á að hækka þurfi skattinn. Aðrir þingmenn Framsóknar hafa tekið undir þau sjónarmið.

Aðspurður segir Sigurður Ingi að við séum á eðlilegum stað með bankaskattinn og hann telji ekki ástæðu til að hækka hann.

„Það er staðreynd að bankaskatturinn hér á landi er hár í alþjóðlegum samanburði. En auðvitað þarf að meta það ef ákveðnar atvinnugreinar hagnast á aðstæðum sem skapast, get tekið sem dæmi orkufyrirtæki í Evrópu. Það er eðlilegt að setja hvalrekaskatt á þau fyrirtæki sem hagnast á verðbólgu. Bankaskatturinn er að mínu mati nógu hár en ef við lækkum hann verður að tryggja að það skili sér til viðskiptavina. Það er alltaf áskorun á Íslandi þar sem fákeppni er í öllum atvinnugreinum,“ segir Sigurður Ingi.

Á Íslandi eru gerðar ríkar kröfur um bindiskyldu á fjármálafyrirtæki og erum við með mestu kröfur í Evrópu í þeim efnum. Þær hafa orðið til þess að arðsemi bankakerfa er lítil hér á landi líkt og ViðskiptaMogginn hefur reglulega fjallað um.

Ekki tímabært að létta á regluverki

Sigurður Ingi segir ekki tímabært að létta á regluverki á fjármálageirann. Hann segir ekki nægilega langan tíma liðinn frá efnahagshruninu árið 2008.

„Ég held að við séum ekki komin nægilega langt frá þeirri skelfingu sem greip um sig við bankahrunið 2008. Seinni salan á Íslandsbanka sýndi hversu mikilvægt það er að traust standi á sterkum grunni. Það er betra að vera með skýrar reglur og mikið traust. Íslenskt fjármálakerfi er vel fjármagnað og með háa eiginfjárstöðu. Við getum sagt að staðan sé mjög góð. Fjármálafyrirtæki eiga að mínu viti að vera þjónustufyrirtæki en ekki maskínur sem búa til peninga,“ segir Sigurður Ingi.

Ítarlegt viðtal við Sigurð Inga má lesa í ViðskiptaMogganum í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK