Spá óbreyttum vöxtum en gætu lækkað í nóvember

Ásgeir Jóns­son seðlabanka­stjóri. Í næstu viku mun peningastefnunefnd Seðlabankans ákveða …
Ásgeir Jóns­son seðlabanka­stjóri. Í næstu viku mun peningastefnunefnd Seðlabankans ákveða hvort stýrivextir verði áfram óbreyttir eða taki breytingum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þrátt fyrir ágæta lækkun verðbólgu í september, sem Hagstofan kynnti í morgun, þá spá greiningardeildir bankanna því áfram að Seðlabankinn muni halda óbreyttum vöxtum.

Vaxtaákvörðunardagur bankans er á miðvikudaginn í næstu viku. Bæði greiningardeild Íslandsbanka og hagfræðideild Landsbankans spá óbreyttum vöxtum, en Íslandsbanki á von á vaxtalækkun í nóvember. Stýrivextir Seðlabankans standa nú í 9,25%.

Verðbólgan komin í 5,4%

Tólf mánaða verðbólga mælist nú 5,4%, en hafði verið 6% í ágúst. Hefur verðbólgan ekki mælst lægri síðan í desember 2021. Hún fór hæst í 10,2% í febrúar 2023, en hefur síðan verið á niðurleið, með nokkrum hikum þó inn á milli.

Mest lækk­un var á verði í mötu­neyt­um eða 35,9% og flug­far­gjöld­um til út­landa, sem lækkuðu um 16,5%. Lækk­un í mötu­neyt­um er að miklu leyti kom­in til vegna þess að máltíðir í grunn­skól­um eru nú gjald­frjáls­ar.

Verð á föt­um og skóm hækkaði um 5,0% og reiknuð húsa­leiga hækkaði um 0,7%.

Lækkunarferli gæti hafist í nóvember

Í spá Íslandsbanka segir að ýmsar vísbendingar séu um að verðbólguþrýstingur fari nú hjaðnandi og að spenna í hagkerfinu sé á undanhaldi. „Við spáum því að vaxtalækkunarferli hefjist í nóvember og að það herði á lækkunartaktinum eftir því sem hagkerfið kólnar frekar og verðbólga hjaðnar.“

Íslandsbanki spáir því að verðbólga verði komin í 5,1% um áramótin og hjaðni svo enn frekar á næsta ári og verði um 3% undir lok næsta árs.

Lækkunin gæti reynst þensluhvetjandi

Í spá Landsbankans er bent á að verðbólguhjöðnun undanfarið skýrist að hluta til af niðurfellingu einstaka skólagjalda og gjalda vegna skólamáltíða. Slík niðurfelling lækki vísitöluna, en leiði einnig til þess að almenningur hafi meira á milli handanna og kunni því til lengri tíma að vera þensluhvetjandi.

Landsbankinn telur að þrátt fyrir ríflega verðbólguhjöðnun og síhækkandi raunstýrivexti sé ólíklegt að peningastefnunefnd Seðlabankans þyki forsendur hafa skapast fyrir vaxtalækkun. Vísað er til þess að nefndin hafi stigið varlega til jarðar síðustu mánuði og haldið vöxtum óbreyttum í heilt ár. Þá hafi í síðustu yfirlýsingu nefndarinnar sérstaklega verið talað um varkárni og að bankanum sé mikið í mun að hætta ekki á að missa stjórn aftur á verðbólguvæntingum.

Landsbankinn bendir jafnframt á að kröftug kortavelta bendi enn til þess að heimilin hafi svigrúm til neyslu og síaukin innlán heimila gefi til kynna að neyslan geti aukist. Þá sé enn eftirspurnarþrýstingur á íbúðamarkaði og ekki sé farið að bera á verulega auknu atvinnuleysi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK