Sigurður Páll skipaður skrifstofustjóri skrifstofu efnahagsmála

Sigurður Páll Ólafsson
Sigurður Páll Ólafsson Ljósmynd/Silla Páls

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Sigurð Pál Ólafsson í embætti skrifstofustjóra skrifstofu efnahagsmála hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Staðan var auglýst í ágúst sl. Sigurður Páll var valinn í embættið að fengnum tillögum frá ráðgefandi hæfnisnefnd. Hann tók við embættinu 9. október. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef fjármálaráðuneytinu. 

Sigurður Páll útskrifaðist með B.A. gráðu í hagfræði 2015 frá Háskóla Íslands, meistarapróf í þjóðhagfræði og fjármálamörkuðum 2016 frá Barcelona Graduate School of Economics og hefur skilað inn doktorsritgerð í hagfræði við Copenhagen Business School og er áætluð útskrift í október 2024. Sigurður Páll hefur um átta ára skeið starfað sem sérfræðingur og settur skrifstofustjóri á skrifstofu efnahagsmála.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK