KAPP Skaginn kaupir eignir þrotabús Skagans 3X

Í þessu húsnæði á Akranesi var Skaginn 3X með starfsemi …
Í þessu húsnæði á Akranesi var Skaginn 3X með starfsemi sína. mbl.is/Sigurður Bogi

Hópur fjárfesta hefur náð samkomulagi um kaup á öllum búnaði og lausafé þrotabús Skagans 3X á Akranesi.

Hópurinn mun einnig taka á leigu mikið af þeim húsakosti sem fyrirtækið bjó yfir í því skyni að hefja þar aftur rekstur.

Fram kemur í tilkynningu að nýstofnað félag, KAPP Skaginn ehf., kaupi eignirnar.

Félagið er að meirihluta í eigu KAPP ehf., rótgróins tæknifyrirtækis sem sérhæfir sig í tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi og annan iðnað. Aðrir hluthafar KAPP Skagans ehf. eru meðal annars Eignarhaldsfélagið VGJ og TECTRU S/A, auk lykilstarfsmanna hins nýja félags og ýmsir fjárfestar.

Af hálfu þrotabúsins komu Helgi Jóhannesson skiptastjóri og Íslandsbanki að gerð samkomulagsins.

Störf tryggð og ábatasöm starfsemi 

„Ekki aðeins er verið að tryggja störf á Akranesi heldur eru væntingar okkar að þarna verði rekin ábatasöm starfsemi sem til lengri tíma geti orðið miðstöð þekkingar og þróunar félagsins fyrir m.a. sjávarútveg hér á landi,” segir Freyr Friðriksson, forstjóri og stærsti hluthafi KAPP, í tilkynningunni.

Að sögn Freys hefði áfanganum ekki verið náð nema af því að margar hendur lögðust á eitt, ekki bara forsvarsmenn þrotabúsins og Íslandsbanka, heldur einnig Akraneskaupstaður, auk fjölda annarra aðila.

Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins en vonir standa til þess að unnt verði að hefja starfsemi að nýju á Akranesi 1. nóvember.

Ráðgjafar kaupanda við viðskiptin voru LEX lögmannstofa og OPUS lögmenn, auk þess sem Sævar Freyr Þráinsson veitti ráðgjöf í sjálfboðavinnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK