Vilja hindra yfirtöku á Commerzbank

Ítölsk stjórnvöld eru varfærin í stuðningi sínum við yfirtökuna.
Ítölsk stjórnvöld eru varfærin í stuðningi sínum við yfirtökuna. AFP

Þýska ríkisstjórnin vill koma í veg fyrir mögulega óvinveitta yfirtöku ítalska bankans UniCredit á Commerzbank, einum stærsta banka Þýskalands.

Með yfirtökunni yrðu þýskir og ítalskir hagsmunir samtengdir, en skuldastaða Ítalíu er margfalt verri en Þýskalands.

Samkvæmt frétt Reuters yrði sameining bankanna tveggja möguleg ógn við fjármálastöðugleika þar sem UniCredit á tuga milljarða evra virði af ítölskum ríkisskuldabréfum.

Nokkrir aðilar innan þýsku stjórnarinnar binda nú vonir við endurskoðun fjármálaeftirlitsins, BaFin, á regluverki, og beita sér gegn viðskiptunum.

Ein lykilröksemd í málinu er að Þýskaland myndi sitja uppi með svartapétur ef UniCredit drægist inn í ítalska skuldakreppu.

Leikur lykilhlutverk

BaFin, sem leikur lykilhlutverk í því hvort UniCredit nái ráðandi hlut í Commerzbank, er byrjað að skoða ósk bankans um að auka við eignarhlut sinn úr 9,9% í 30%.

BaFin mun koma með tillögu til evrópska seðlabankans, ECB, sem hefur eftirlit með lánveitandanum, og mun hafa lokaorðið um við­skiptin, byggt á nokkrum skilyrðum eins og fjárhagslegum styrk kaupandans og orðspori stjórnenda.

Eins og segir í frétt Reuters eru ítölsk stjórnvöld varfærin í stuðningi sínum við yfirtökuna, en Þjóð­verjar vona að áhyggjur þeirra muni ónýta eða að minnsta kosti fresta samþykki ECB.

Heimildarmenn Reuters sem þekkja til hjá ECB segja að þar innanhúss sé útbreidd óánægja með andstöðu Þýskalands, þó að landið sé áhrifamikið og geti reitt sig á valdafólk innan stofnunarinnar.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK