Gunnar Þór: „Yfirtökutilboðið einungis fyrsta skrefið“

Þann 20. september síðastliðinn lagði Langisjór fram yfirtökutilboð í Eik …
Þann 20. september síðastliðinn lagði Langisjór fram yfirtökutilboð í Eik fasteignafélag. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Við hefðum gjarnan viljað eignast fleiri bréf í Eik í aðdraganda yfirtökutilboðsins og í tilboðsferlinu sjálfu. Við hefðum gjarnan viljað eignast fleiri bréf í Eik í aðdraganda yfirtökutilboðsins og í tilboðsferlinu sjálfu. Yfirtökutilboðið var hins vegar einungis fyrsta skrefið í vegferð Langasjávar að auka áhrif sín og eignarhald í Eik," er haft eftir Gunnari Þór Gíslasyni framkvæmdastjóra Langasjávar í tilkynningu til Kauphallarinnar sem birtist í gærkvöldi.

Í tilkynningunni kemur fram að samþykki hafi borist fyrir alls 247.190 hlutum í Eik. Samkeppniseftirlitið tilkynnti Langasjó þann 14. október 2024 að ekki væri um tilkynningarskyldan samruna að ræða. Greiðsla til þeirra sem samþykktu tilboðið og afhending hluta til tilboðsgjafa fer fram í síðasta lagi 25. október 2024.

Þann 20. september 2024 gerði Langisjór ehf. hluthöfum Eikar yfirtökutilboð, með þeim skilmálum og skilyrðum sem fram komu í opinberu tilboðsyfirliti dagsettu sama dag. Gildistími tilboðsins rann út í gær.

Það lá lengi fyrir að Langisjór og samstarfsaðilar væru nálægt því að fara yfir 30% eignarhlut í Eik og þyrftu þannig að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð. Nú er Langasjó frjálst að eignast meirihluta í félaginu án þess að endurtaka það ferli. Hvenær og á hvern hátt Langisjór eykur við hlut sinn í Eik mun fara eftir markaðsaðstæðum og öðrum fjárfestingartækifærum sem bjóðast," er haft eftir Gunnari Þór.

Markaðsaðstæður ráða för

Á þeim degi sem tilboðið var sett fram fór Langisjór og samstarfsaðilar með 1.106.281.964 hluti í Eik sem samsvarar 32,31% af hlutafé félagsins. Eftir tilboðið fer Langisjór og samstarfsaðilar með 1.106.529.154 hluti í Eik sem samsvarar 32,32% af hlutafé félagsins.

Nú er Langasjó frjálst að eignast meirihluta í félaginu án þess að endurtaka það ferli. Hvenær og á hvern hátt Langisjór eykur við hlut sinn í Eik mun fara eftir markaðsaðstæðum og öðrum fjárfestingartækifærum sem bjóðast. Gengi Eikar hafði sveiflast í kringum 10 krónur á hlut lengstan hluta þessa árs þegar það tók nokkurn kipp í litlum viðskiptum strax eftir birtingu hálfsársuppgjörs félagsins þann 15. ágúst," segir Gunnar Þór í tilkynningunni.

Góður samhljómur með áhersluatriðum

Hann segir það hafa staðið til að Langisjór myndi bæta við sig eignarhlut með því að kaupa hlutabréf í utanþingsviðskiptum helgina eftir birtingu árshlutauppgjörs. Það hafi ekki gengið eftir og þar eftir hækkaði gengi félagsins enn frekar eftir að yfirtökutilboð var lagt fram þannig að markaðsverð á hlutabréfum Eikar var orðið nokkuð hærra en tilboðsverð þegar yfir lauk.

Á tilboðstímanum höfum við haft tækifæri til að eiga marga uppbyggilega fundi með stærstu hluthöfum Eikar. Þann vettvang höfum við nýtt til að ræða sýn okkar á uppbyggingu, skipulag og framtíðarhorfur félagsins við meðeigendur. Við finnum góðan samhljóm hjá þeim við þau áhersluatriði okkar að hagræða í eignasafni Eikar, auka arðgreiðslur og skuldsetningu félagsins. Þessi samstilling í hluthafahópi félagsins gefur okkur tækifæri til að horfa björtum augum fram á veginn þar sem hagsmunir hluthafa fara saman við vegferð Eikar,“ segir Gunnar Þór í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK