Tíu sprotafyrirtæki efla ferðaþjónustu um allt land

Mynd frá viðburði KLAK - Icelandis startups fyrr í haust.
Mynd frá viðburði KLAK - Icelandis startups fyrr í haust. Ljósmynd/Aðsend

Tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í Startup Tourism viðskiptahraðlinum sem KLAK Icelandic startups stendur fyrir og hefst 28. október næstkomandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá KLAK.

Hraðlinum er ætlað að styrkja stoðir ferðaþjónustu á Íslandi, efla ný fyrirtæki, fjölga afþreyingarmöguleikum, ýta undir tæknivæðingu í ferðaþjónustu og stuðla að dreifingu ferðamanna víðsvegar um landið, allan ársins hring.

Mikill fjöldi umsókna barst í Startup Tourism en hraðallinn hefur legið í dvala undanfarin ár. Hann var keyrður fjórum sinnum á árunum 2016-2019 með góðum árangri og mörg ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi sem eru starfandi enn í dag tóku sín fyrstu skref í Startup Tourism. 

Í ár bárust umsóknir úr öllum landshlutum og var þá um að ræða hugmyndir um allt frá nýjum áfangastöðum ferðamanna til tæknilausna og þjónustuhugmynda.

Kolfinna Kristínardóttir verkefnastjóri Startup Tourism segir að ánægjulegt hafi verið að finna mikinn áhuga á hraðlinum og lausnum í ferðaþjónustu um allt land á 13 kynningarfundum sem haldnir voru fyrr í mánuðinum.

Kolfinna Kristínardóttir verkefnastjóri Startup Tourism.
Kolfinna Kristínardóttir verkefnastjóri Startup Tourism. Ljósmynd/Aðsend

Ferðaþjónustan hefur verið í örum vexti eftir heimsfaraldurinn og greinilegt að tækifæri  til úrbóta og þróunar í greininni eru mörg. Teymin sem voru valin inn í hraðalinn í ár eru afar fjölbreytt og ég er ekki í nokkrum vafa um að þeirra framlag muni stuðla að nýsköpun í greininni og bæta upplifun bæði ferðamanna og heimamanna,” segir Kolfinna  

Bakhjarlar Startup Tourism eru Berjaya Iceland Hotels, Icelandair, N1, Icelandia, Menningar- og viðskiptaráðuneytið og Faxaflóahafnir, auk þess sem Íslenski ferðaklasinn / Iceland Tourism og Íslandsstofa koma að verkefninu sem samstarfsaðilar. 

Teymin tíu sem taka þátt í Startup Tourism í ár eru:

Alheimur

Alheimur er vísindasetur sem inniheldur gagnvirkt og áhugavert efni um eðli vísinda og tækni. Markmiðið er að fræða í gegnum leik, skemmtun og leikræna framsetningu sem heillar börn og aðra gesti þannig að lærdómurinn situr eftir og löngunin til að vita meira eykst. Í Alheimi er skemmtun og fræðsla samþætt svo upplifun verður einstök.

Eys ferðaþjónusta

Eys ferðaþjónusta miðar að því að ferðafólk geti notið Artískrar náttúru (Norðurslóða) og ferðalaga þar með sjálfbærum hætti og án þess að skapa átroðning á þeim stöðum þar sem ferðast er um. Sköpuð er heildstæð ferðaupplifun þar sem skipulagið verður að njóta en ekki þjóta á milli ferðamannastaða og öll ferðalög innanlands verði með sjálfbærum hætti með umhverfisvænum orkugjöfum. Jafnframt verði lögð rík áhersla á að ferðaupplifunin tengist við viðburði íbúa á svæðinu þannig að ferðafólk fá innsýn inn í menningu hvers svæðis.

HotSheep

HotSheep einbeitir sér að svokölluðum last-minute bókunum á upplifunum. Fyllt er upp í ferðir með því að bjóða hvetjandi afslætti þegar það er stutt í brottför. Með þessu fær ferðaskipuleggjandinn betri nýtingu og ferðamaðurinn fær betri verð.

IcelandCover

Verkefnið snýst um það að gefa erlendum ferðamönnum færi á að leigja sér góðan útivistarfatnað á hagkvæmu verði á meðan á dvöl sinni stendur. Hliðarstarfsemi er að yfir sumartímann bjóðum við einnig upp á útilegubúnað. Margir ferðamenn frá hlýjum löndum eiga ekki hlýjan útivistarfatnað. Þá tekur útivistarklæðnaður mikið pláss í farangurstöskum. Þetta, ásamt þeirri hentisemi að geta nálgast öll útivistarföt sem þeir þurfa á einum, vel staðsettum, stað eru ástæðurnar fyrir starfsemi IcelandCover.

NordTemp

Norræn atvinnumiðstöð fyrir ferðaþjónustu, sem tengir fyrirtæki í ferðaþjónustu við hæft starfsfólk. Vettvangurinn okkar straumlínulagar ráðningarferli fyrir störf þar sem vinnutími og vaktir eru sveigjanlegar og tryggir að fyrirtæki geti fljótt fundið hæft starfsfólk þegar þau þurfa mest á því að halda.

PMU (PICK ME UP)

PMU.is er sérsniðinn hugbúnaður fyrir ferðaþjónustu sem eykur utanumhald í skutlþjónustu fyrir ferðamenn. Notandinn getur nýtt sér leiðarvísi sem auðveldar honum að finna sína stoppistöð og tryggir að hann sé á réttum stað. Þegar hann er mættur getur hann stimplað sig inn, sem nýtir staðsetningarhnit símans og sannreynir að hann sé á réttum stað. Innstimplunin sýnir fram á að kúnnin hafi verið mættur á réttum tíma og réttum stað ef svo skyldi að rútan færi án hans.

Skjálftavaktin

Verkefninu er ætlað að endurreisa ferðþjónustu í Grindavík eftir jarðhræringar með áherslu á öryggi ferðamanna og nýtingu jarðfræðilegrar sérstöðu svæðisins. Við ætlum að byggja upp sjálfbæra ferðaþjónstu með fræðslusetrum, skipulögðum ferðum og náttúruupplifunum, ásamt að skapa vettvang fyrir vísindarannsóknir. Við ætlum að nýta fyrirliggjandi gögn frá Jarðvísindastofnun og Veðurstofu Íslands til kortlagningar. Markmiðið er að tryggja sjálfbæra þróun og endurreisn Grindavíkur sem áfangastaðar.

Snotra Sustainability

Snotra er að þróa gervigreindarlausn byggða á SaaS til að styrkja ferðaþjónustuna, tryggja samræmi við sjálfbærnistefnu ESB og iðnaðarstaðla með gagnasöfnun og dreifðri, gagnvirkri þjálfun sem miðar að því að auka heildarþátttöku í sjálfbærni í ferðaþjónustu. .

Spunagaldur/Guyde

Guyde er raddstýrt leiðsöguapp sem, með hjálp spunagreindar og talgervilstækni, veitir ferðalöngum á einka- og bílaleigubílum félagsskap og leiðsögn í samræmi við staðsetningu þeirra og persónulegar óskir.

Ævintýraeignir

Ævintýraeignir áforma að gera nýjan áfangastað á Suðurlandi, nánar tiltekið Reynisfjall við Vík í Mýrdal. Ætlunin er að bæta aðgengi og öryggi með merkingum og stikum fyrir hjóla og göngufólk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK