Ingvar nýr formaður Hugverkaráðs SI

Ingvar Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Nox Medical, hefur tekið við sem formaður …
Ingvar Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Nox Medical, hefur tekið við sem formaður Hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins. Ljósmynd/Aðsend

Ingvar Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Nox Medical, hefur tekið við sem formaður Hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Hugverkaráð SI mótar stefnu og sýn í málefnum hugverkaiðnaðar. Ingvar situr einnig í stjórn Samtaka fyrirtækja í líf- og heilbrigðistækni sem er meðal starfsgreinahópa Samtaka iðnaðarins.  

Auk Ingvars sitja í Hugverkaráði SI þau Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI, Gunnar Zoëga forstjóri Opinna Kerfa, Íris E. Gísladóttir rekstrarstjóri Evolytes, Vigdís Tinna Sigurvaldadóttir lögfræðingur hjá Marel, Halldór Snær Kristjánsson framkvæmdastjóri Myrkur Games, Guðmundur Árnason fjármálastjóri Controlant, Hynur Ólafsson yfirlögfræðingur Kerecis, Bergþóra Halldórsdóttir Chief of Staff hjá Borealis Data Centers og Róbert Helgason framkvæmdastjóri KOT hugbúnaðarlausna og Autoledger. 

Í tilkynningunni segir að gugverkaiðnaður hafi verið í stöðugum vexti síðustu ár en Samtök iðnaðarins áætla að útflutningstekjur greinarinnar verði yfir 300 milljarðar króna á þessu ári. Ríflega 18.000 manns starfa í greininni.

Haft er eftir Ingvari Hjálmarssyni, framkvæmdastjóra Nox Medical og formanni Hugverkaráðs SI í fréttatilkynningu:

„Ég er feykilega spenntur fyrir þessu verkefni sem fram undan er. Ég trúi því að lífskjör á Íslandi séu fólgin í gróskumiklum og sterkum hugverkaiðnaði. Á síðustu árum hefur mikill árangur náðst með þéttu samstarfi Samtaka iðnaðarins, félagsmanna og stjórnvalda. Útflutningur hugverkafyrirtækja hefur tvöfaldast á aðeins fimm árum þökk sé hagfelldu og hvetjandi starfsumhverfi. Á sama tíma og við megum vera stolt af árangri liðinna ára þá erum við rétt að byrja. Tækifæri hugverkaiðnaðarins eru bókstaflega endalaus. Uppbyggingin og stefnumótunin sem hefur átt sér stað í Hugverkaráði SI skapar sterkan grunn til enn frekari sigra í framtíðinni.“

Haft er eftir Sigríði Mogensen, sviðsstjóra iðnaðar- og hugverkasviðs SI í fréttatilkynningu:

„Hugverkaiðnaður er ein af fjórum útflutningsstoðum Íslands og getur, ef rétt er á málum haldið, orðið verðmætasta útflutningsstoðin innan nokkurra ára. Sókn og vöxtur hugverkaiðnaðar undanfarin ár er ekki tilviljun. Hún kemur til vegna öflugra frumkvöðla en ekki síst stórstígra breytinga á skilyrðum til nýsköpunar hér á landi sem stjórnvöld hafa ráðist í. Við bindum vonir við að sú ríkisstjórn sem tekur við eftir alþingiskosningarnar setji málefni hugverkaiðnaðar í forgang, enda mun það hafa mikil áhrif á hagsæld og lífskjör hér á landi til langrar framtíðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka